Capecitabine medac
Æxlishemjandi lyf og lyf til ónæmistemprunar | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Capecítabín
Markaðsleyfishafi: medac Gesellschaft für klinische Spezialpräparate | Skráð: 19. nóvember, 2012
Capecitabine medac er krabbameinslyf sem inniheldur virka efnið capecítabín. Lyfið er notað til meðferðar við krabbameini í ristli, endaþarmi, maga og brjóstum. Lyfið er frumueyðandi og stöðvar vöxt krabbameinsfruma.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
Einstaklingsbundinn skammtur tekinn 2svar á dag með mat eða ekki síðar en 30 mínútum eftir máltíð. Það á að gleypa töflurnar heilar, það má ekki mylja eða brjóta þær. Capecitabine medac er vanalega tekið í meðferðarlotum, töflurnar teknar í 14 daga og svo 7 daga hlé þar sem engar töflur eru teknar.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Það á ekki að taka skammt sem gleymdist að taka og ekki tvöfalda skammt til að bæta upp fyrir þann sem gleymdist.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta skal töku lyfsins í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef teknir eru of stórir skammtar skal hafa samband við lækni eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222). Einkenni ofskömmtunar geta verið ógleði og uppköst, niðurgangur, bólgur eða sár í meltingarvegi eða munni og verkur eða blæðingar frá þörmum eða maga.
Langtímanotkun:
Lyfið er ætluð til meðferðar við krabbameini en ekki til langtíma.
Aukaverkanir
Aukaverkanirnar geta orðið alvarlegar því er alltaf mikilvægt að láta lækninn vita um leið og þær koma fram.
| Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
| Brjóstverkur | ![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|||
| Erting, kláði, útbrot | ![]() |
![]() |
|||||
| Hár hiti | ![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|||
| Lystarleysi | ![]() |
![]() |
|||||
| Niðurgangur, ógleði, uppköst og kviðverkir | ![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|||
| Roði, bólga eða önnur ofnæmiseinkenni | ![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|||
| Sýkingar | ![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|||
| Þreyta | ![]() |
![]() |
|||||
Milliverkanir
Það má ekki taka veirulyfið brívúdín samhliða Capecitabine medac. Einnig þarf að passa fólinsýru inntöku samhliða lyfinu. Fólínsýra er oft í fjölvítamínum, láttu lækni vita af öllu lyfjum og bætiefnum sem þú tekur.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Clozapin Medical
- Clozapine Actavis
- Flagyl
- Folsyra Evolan
- Hyrimoz
- Idacio
- Metronidazol Actavis
- Metronidazol Baxter Viaflo
- Metronidazol Normon
- Warfarin Teva
- Yuflyma
- Zeposia
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- þú sért með hjartasjúkdóm
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með einhvern augnsjúkdóm
- þú sért með exem eða aðra húðsjúkdóma
- þú sért með lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með sykursýki
- þú hafir verið með niðurgang, uppköst eða hafir ekki getað drukkið vökva
Meðganga:
Það má ekki nota lyfið á meðgöngu. Konur á barneignaraldri verða að nota örugga getnaðarvörn á meðan lyfið er tekið og í 6 mánuði eftir að inntöku lýkur. Karlar sem nota lyfið verða einnig að nota örugga getnaðarvarnir meðan á meðferð stendur og í 3 mánuði eftir að henni lýkur.
Brjóstagjöf:
Það má ekki nota lyfið með barn á brjósti, það þarf að bíða í 2 vikur eftir að notkun lyfsins er lokið með að gefa barni brjóst.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum og unglingum undir 18 ára.
Eldra fólk:
Aukverkanir eru algengari hjá sjúklingum eldri en 60 ára.
Akstur:
Aukaverkanir lyfsins eins og svimi, ógleði og þreyta geta haft áhrif á hæfni til aksturs. Hver og einn verður að meta hæfni sína þegar reynsla er komin á lyfið.
Áfengi:
Í litlu magni virðist áfengi ekki hafa áhrif á virkni lyfsins.
Annað:
Capecitabine medac má einungis sérfræðilæknir með reynslu af notkun æxlishemjandi lyfja skrifa upp á.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

