ProQuad

Bóluefni | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Hettusóttarveirur Mislingaveirur Rauðu hunda veirur Hlaupabóla veikluð veira

Markaðsleyfishafi: Merck Sharp & Dohme | Skráð: 1. febrúar, 2025

Mislingar, hettusótt, rauðir hundar og hlaupabóla eru sjúkdómar sem orsakaðir eru af veirum. Mislingar eru mjög smitandi og berst sjúkdómurinn manna á milli með úðasmiti. Sjúkdómnum geta fylgt alvarlegir fylgikvillar eins og heilabólga eða lungnabólga og á meðgöngu er hætta á fóstursýkingu eða fósturláti. Hettusótt er oftast nær vægur sjúkdómur en í einstaka tilfellum getur hún valdið heyrnaskerðingu og bólgu í eistum sem getur leitt til ófrjósemis. Rauðir hundar er vægur sjúkdómur í börnum. Þeim sem stafar mesta hætta af sjúkdómnum eru óléttar konur þar sem sjúkdómurinn getur valdið fósturskaða, eins og t.d. heyrnaskerðingu, blindu, vansköpun og jafnvel fósturláti. Hlaupabólu þekkjum við flest og er sjúkdómurinn yfirleitt vægur. Í einstaka tilfellum getur sjúkdómurinn verið alverlegur og þá sérstaklega þeim sem eru í áhættuhóp. Áhættuhópur hlópabólu eru ónæmisbældir, þungaðar konur sem hafa ekki áður fengið hlaupabólu og ungabörn. ProQuad inniheldur mislinga, rauðu hunda, hettusóttar og hlaupabólu veiklaðar veirur sem eiga að vekja upp mótefnasvörun í líkamanum án þess að fólk veikist af þessum sjúkdómum og veitir þannig vörn gegn þeim.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Stungulyf undir húð eða í vöðva.

Venjulegar skammtastærðir:
Tveir skammtar af bóluefni gefnir með að minnsta kosti 1 mánaðar millibili en helst ekki láta meira en 3 mánuði líða á milli. Nota má ProQuad sem annan skammt, handa börnum sem hafa áður fengið bóluefni gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum, sem og bóluefni gegn hlaupabólu.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Ekki liggja fyrir neinar upplýsingar um það hversu fljótt bóluefni byrjar að virka.

Verkunartími:
Að minnsta kosti 15 ár.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum á köldum stað (2-8°C) þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lyfið má ekki frjósa.

Ef skammtur gleymist:
Ef skammtur gleymist ber að gefa hann um leið og munað er eftir því þar sem möguleiki er að ekki hafi myndast nægilegt magn af mótefnum. Ekki má gefa tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki er talið æskilegt að hætta gjöf lyfsins fyrr en allir skammtar hafa verið gefnir þar sem líkur eru á að ekki hafi myndast nægilegt magn af mótefni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Á ekki við.

Langtímanotkun:
Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.


Aukaverkanir

Aukaverkanir eru yfirleitt vægar og ganga yfir á nokkrum dögum.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Hiti          
Krampar        
Ósamhæfðar vöðvahreyfingar        
Roði, bólga og eymsli á stungustað          
Sjóntruflanir, heyrnaleysi        
Uppköst, niðurgangur          
Útbrot          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar        
Skapstyggð          

Milliverkanir

Lyfið má ekki blanda í sömu sprautu við önnur bóluefni. Ef nota á önnur bóluefni þarf að nota aðra stungustaði. Ef ekki er bólusett samtímis þá þurfa að líða a.m.k. 4 vikur þar til bólusett er með öðru bóluefni sem inniheldur lifandi, veiklaða veiru.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með hita eða sýkingu
  • þú sért með berkla
  • þú sért með skert ónæmiskerfi
  • þú hafir einhvern tíma fengið krampa
  • þú sért með ofnæmi fyrir eggjum
  • þú hafir nýlega fengið bólusetningu

Meðganga:
Lyfið er ekki ætlað konum á meðgöngu. Kona má ekki verða þunguð fyrr en mánuði eftir gjöf á bóluefninu.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort bóluefnið skilst út i brjóstmjólk og skal því gæta varúðar þegar lyfjagjöf er íhuguð.

Börn:
Ætlað börnum 12 mánaða og eldri en má gefa 9-12 mánaða við sérstakar aðstæður. Samkvæmt bólusetningaráætlun.

Eldra fólk:
Ekki er talin þörf á að bólusetja einstaklinga eldri en 40 ára.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Bólusettur getur í mjög sjaldgæfum tilvikum valdið hlaupabólusmiti. Bólusettur ætti því að forðast náið samneyti við þá sem eru næmir fyrir hlaupabólu í allt að 6 vikur eftir bólusetningu.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.