Progestan
Kynhormón | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Prógesterón
Markaðsleyfishafi: Besins Healthcare Ireland Limited | Skráð: 1. febrúar, 2025
Progestan inniheldur hormón sem kallast prógesterón. Progestan er notað hjá konum sem þurfa auka prógesterón til stuðnings við þungun á meðan þær gangast undir tæknifrjóvgun. Lyfið er einnig notað til að fyrirbyggja fyrirburafæðingu hjá konum sem hafa áður eignast fyrirbura eða hafa stuttan legháls. Prógesterón virkar á slímhimnuna í leginu og hjálpar þér við að verða barnshafandi sem og að viðhalda þungun.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Mjúk leggangahylki.
Venjulegar skammtastærðir:
Lyfinu á að stinga djúpt inn í leggöngin.
Tæknifrjógvun: Meðferð byrjar eigi síðar en á þriðja degi eftir eggheimtu. Þá skal nota 600mg af Progestan daglega (200mg 3svar á dag eða 300mg 2svar á dag). Ef þungun er svo staðfest skal halda áfram með sama skammt fram að a.m.k 7.viku en ekki lengur en 12.viku.
Fyrirbygging fyrirburafæðingar: 200mg 2svar á dag frá u.þ.b. 20. viku til 34. viku meðgöngu.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Hormón frásogast hratt, verkun hefst samdægurs.
Verkunartími:
Til að viðhalda lífeðilsfræðilegu prógesterón gildi í blóði þarf að taka lyfið á 12 klst fresti. Lyfið er því heldur skammvirkt.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Á ekki við.
Geymsla:
Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Skaltu nota lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er í næsta skammt skaltu sleppa skammtinum sem gleymdist. Ekki á að tvöfalda skammt til að bæta upp skammt sem gleymst hefur að nota.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Vinsamlegast ráðfærðu þig við lækninn ef þú hættir eða ætlar að hætta notkun.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).
Langtímanotkun:
Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.
Aukaverkanir
Skammvinn þreyta eða sundl getur komið fram innan 1-3 klukkustunda frá því að lyfið var tekið.
| Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
| Blæðing úr leggöngum | ![]() |
![]() |
|||||
| Kláði | ![]() |
![]() |
|||||
| Olíukennd útferð úr leggöngum | ![]() |
![]() |
|||||
| Sviðatilfinning | ![]() |
![]() |
|||||
Milliverkanir
Prógestagen geta haft áhrif á jafnvægi sykursýkimeðferðar og hafa verið tengd við aukna tíðni sykursýki af tegund 2.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- þú sért með hjarta-, lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú eigir sögu um blóðtappa
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum
- þú sért með ofnæmi fyrir hnetum og soja
- þú sért með æxli sem er næmt fyrir hormónum
Meðganga:
Progestan má einungis nota á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu meðan á frjósemismeðferð stendur. Ef lyfið er tekið til að fyrirbyggja fyrirburafæðingu er það gefið frá u.þ.b. 20. viku til 34. viku meðgöngunnar.
Brjóstagjöf:
Ekki má nota lyfið á meðan á brjóstagjöf stendur.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólk:
Engar upplýsingar liggja fyrir um notkun lyfsins hjá 65 ára og eldri.
Akstur:
Lyfið hefur óveruleg áhrif á akstur.
Annað:
Ef þú missir vatnið á meðan þú tekur lyfið verður þú að leita til læknisins eins fljótt og auðið er.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

